Birgir Leifur hefur nú lokið 9 holum á Kazakhstan Open sem er stærsta mótið innan Áskorendamótaraðarinnar þetta árið. Birgir Leifur hefur fengið 3 fugla og 1 skolla og samanlagt því á -2 höggum undir pari. Hann er sem stendur í 17.- 34. sæti.
Efsti maður hefur lokið leik á -6 höggum undir pari en það er spánverjinn Alfredo Garcia-Heredia sem er í 103. sæti styrkleikalistans, en Birgir Leifur er sem stendur í 82. sæti á sama lista.