Birgir Leifur er á -2 höggum undir pari þegar einungis 3 holur eru eftir. Fresta verð leik vegna veðurs upp úr hádeginu og er áætlað að hefja leik aftur nú um 14:30.
Birgir er á parinu samtals þegar einungis 3 holur eru eftir af lokahringnum og því ljóst að 1 fugl getur tryggt honum þátttökurétt á Evrópumótaröðinni á næsta ári.
Mikið hefur verið rætt um stöðuna manna á milli undanfanar mínútur og hafa m.a. borist fréttir af því að Birgir hafi sett niður fugl á 16. brautinni og eigi einungis 2 holur eftir. Skortaflan á heimasíðu mótaraðarinnar hefur hinsvegar ekki gefið upp að Birgir Leifur hafi lokið 16. holunni og því birtum við þær fregnir með fyrirvara.
Spennan er vægast sagt í hámarki og verður næstu klukkustundina þar til úrslit verða ljós.