Birgir Leifur lék á 76 höggum í dag og náði ekki að fylgja eftir góðri byrjun hans í mótinu. Hann er nú sem stendur í 42.sæti. Biggi sagðist í samtali að hann púttaði illa í dag og missti sjálfstraustið á flötunum, hann var enga síður bjartsýnn fyrir morgundaginn eftir dágóða stund á æfingaflötinni í dag. Ljóst er að hann þarf að leika vel á morgun til þess að lyfta sér upp töfluna. Við óskum Bigga góðs gengis á morgun.