Birgir Leifur náði að klára 2. stig úrtökumóts Evrópumótaraðarinnar með miklum sóma. Hann endaði í 4 . – 7. sæti á -6 höggum undir pari. Hann lék alla hringina 4 undir pari. 70, 70, 71 ,71 = 282 sem er einstaklega stöðug spilamennska.

 Nú bíður hans 3. og lokastig úrtökumótanna þar sem 158 keppendur keppast um skráningu á Evrópumótaröðinni á næsta ári. Birgir Leifur hefur tvísinnis verið einungis 1 höggi frá því að ná 30. sæti og þar með bestu niðurstöðu úrtökumótanna.