Birgir Leifur lauk öðrum hring sínum á Telia Tour Waxholm í Svíþjóð á parinu, með 14 pör 2 skolla og 2 fugla. Hann er því samtals á -1 höggi undir pari eftir 2 keppnisdaga í 62.-81. sæti.

Ólíklegt er að það dugi Birgi Leifi til að ná í gegn um niðurskurð þar sem allt bendir til þess að -2 undir par þurfi til að ná niðurskurði mótsins. Þetta kemur þó í ljós þegar líða fer á daginn og fleiri kylfingar koma inn.