Birgir Leifur er nú staddur í Manchester á Englandi þar sem hann tekur þátt í Morson International Pro-am Challenge mótinu sem er enn einn liðurinn í Áskorendamótaröðinni. Völlurinn sem leikið er á tilheyrir Mariott hótelkeðjunni og er í Worsley við Manchester.
Birgir Leifur á rástíma klukkan 13:40 í dag og byrjar á 10. teig. Hann mun leika með þeim Dennis Küpper frá Þýskalandi sem er í 139 sæti á mótaröðinni og englendningnum Van Phillips sem er í 36. sæti. Birgir sjálfur er núna í 166. sæti á styrkleikalista Áskorendamótaraðarinnar eftir að hafa verið í 208. sæti fyrir mótið í Marokkó.
Birgir Leifur mun halda heim á leið að loknu mótinu í Manchester og heimsækja framtíðarafrekskylfinga GKG. Að því búnu er stefnan tekin á St.Omer í Frakklandi eða Norwegian Masters ef hann kemst þar inn.