Birgir Leifur er ekki að leika vel á fyrri 9 holunum á South African Airways Open mótinu sem fram fer á Humewood vellinum í Port Elizabeth í Suður-Afríku. Hann lék fyrri níu holurnar á +5 höggum yfir pari, eða samtals 40 höggum.
Hann hefur fallið niður töfluna og er nú í 82. sæti af þeim 90 keppendum sem eftir eru. Birgir Leifur fékk fimm pör, þrjá skolla og einn skramba á fyrri níu holu hringnum í morgun.
Bein útsending verður frá mótinu klukkan 10:30 á sjónvarpsstöðinni Sýn.