Birgir Leifur Hafþórsson náði ekki að rétta almennilega úr kútnum í dag þrátt fyir að hafa spilað á parinu í morgun á Kazakhstan Open sem er eitt af síðustu mótunum á Áskorendamótaröð Evrópumótaraðarinnar.

 Birgir Leifur lék á parinu í dag fékk 10 pör, 4 fugla og 4 skolla. Hann lék á +2 höggum yfir pari í gær og því samtals á +2 höggum yfir pari.

 Það er ljóst að Birgir nær ekki niðurskurði á þéssu móti þar sem niðurskurður mun fara fram við -1 undir pari.