Birgir Leifur Hafþórsson komst ekki í gegnum niðurskurðinn á hinu firna sterka Wales Open sem haldið var á Celtic Manor golfvellinum í Wales um helgina.
Birgi tókst ekki að sýna sitt rétta andlit og lék báða hringina á 73 höggum og endaði mótið því á 8 höggum yfir pari, 9 höggum frá því að komast í gegnum niðurskurðinn. Er þetta annað mótið í ár sem að Birgir nær ekki í gegnum niðurskurðinn, en hann hefur komist áfram í fimm mótum.