Birgir Leifur hefur lokið leik á Ryder Cup í Wales og endaði á +8 höggum yfir pari eftir 4 keppnisdaga.
Birgir byrjaði illa í dag með því að fá 2 skramba, 1 par og 2 skolla á fyrstu 6 holunum. Hann lék síðan síðustu 12 holurnar á -3 undir pari og endaði á +4 höggum yfir pari í dag. Hann lék á +5 höggum yfir pari í gær eftir að hafa tryggt sér áframhald í gegn um niðurskurð með góðri spilamennsku á 2. keppnisdegi.
Nú á eftir að koma í ljós hvort Birgir Leifur komist inn á Scandinavian Masters um næstu helgi. Að því búnu mun Birgir Leifur koma Heim til Íslands ásamt fjölskyldu sionni í 2-3 vikur og leika með karlasveit GKG í Sveitakeppni Íslands meðal annars.