Birgir Leifur endaði í 59.-60. sæti á Opna Enjoy Jakarta Astro Indónesíu mótinu sem lauk í gær sunnudag. BIrgir Leifur lék nokkuð stöðugt golf alla keppnisdagana 71-72-74-72=289 en náði ekki að setja niður nægjanlega mikið af fuglum til að ná betri árangri. Alls voru það 68 keppendur sem náðu í gegn um niðurskurð í þessu móti ásamt Birgi Leifi.
Birgir Leifur náði að vinna sér inn 2.301 evru með árangri sínum sem eru rúmar 200 þúsund krónur.
Næsta mót sem Birgir Leifur er skráður í er Johnny Walker Classic mótið sem fram fer á Thailandi 1. – 4. mars n.k. M’otið er eitt af stærri mótunum á Evrópumótaröðinni og því verður það ekki sjálfgefið að Birgir Leifur fái inni á þ´vi móti. Hann er núna í 62. sæti á biðlista eftir þátttöku í mótið.