Birgir Leifur Hafþórsson mun hefja leik á sínu 15. móti á Áskorendamótaröð Evrópu á þessu keppnistímabili á morgun. Birgir Leifur mun ræsa á 10 teig klukkan 9:45 að staðartíma.
Birgir Leifur hefur náð að bæta sig á styrkleikalistanum frá því sem var. Hann er núna í 81. sæti styrkleikalistans, en þess má geta að hann endaði í 84. sæti að loknu síðasta keppnistímabili.
Meðspilarar Birgis Leifs næstu 2 dagana verða þeir Marco Soffiett frá Ítalíu sem hefur tekið þátt í jafn mörgum mótum og er sem stendur í 186. sæti á listanum. Hinn meðkeppandi Birgis er Panu Kylliäinen frá Finnlandi sem einnig hefur tekið þátt í 14 mótum og er sem stendur í 113. sæti peningalista Áskorendamótaraðarinnar.