Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur okkar í GKG, spilaði á einu höggi undir pari í fyrstu umferð BA-CA Golf Open mótsins í Austurríki í dag. Birgir byrjaði á 10.teig og leik mjög stöðugt golf fyrstu 10 holurnar, fór þær allar á pari. Á seinni níu fékk hann hins vegar tvo skolla og þrjá fugla, þann síðasta á 18.holu
Nú þegar Birgir er nýkominn inn í klúbbhús er hann jafn nokkrum kylfingum í 24.sæti – 36.sæti, en töluverður fjöldi kylfinga á eftir að ljúka leik og því gæti staðan breyst. Greinilegt er þó að ef Birgir spilar svona á morgun, eða betur, þá á hann góða möguleika á að komast í gegnum niðurskurðinn.