Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur GKG, var langt frá sínu besta á Mallorca í dag, en þar spilaði hann sinn fyrsta hring á opna Mallorca mótinu sem er hluti af evrópsku mótaröðinni. Birgir kom inn á 76 höggum, eða heilum 6 höggum yfir pari og gekk því heldur brösuelga hjá okkar manni.
Völlurinn á Mallorca er erfiður og þurfti Birgir til að mynda að taka þrjú víti á hringnum. Birgir þarf því frábæran hring á morgun ætli hann að komast í gegnum niðurskurðinn og er vonandi að honum takist það og fái að vera með um helgina.