Birgir Leifur er nú á +1 höggi yfir pari eftir að hafa lokið við 6 holur í dag. Hann er því samtals á +1 höggi yfir pari í heildina fékk skolla á 4. brautina og er sem stendur í 48. – 56. sæti. Það er því ljóst að ekki má neitt út af bregða til þess að hann nái ekki að vera á meðal 70 efstu að loknum hringnum í dag.

 Við vonum þó að okkar maður nái að standast pressuna sem hlýtur að vera þó nokkur í hans sporum.