Birgir Leifur var heldur betur að standa sig í dag þegar hann trygggði sér áframhaldandi leik í gegn um niðurskurð eftir að hafa sett niður 2 fugla á 3 síðustu holunum.
Birgir Leifur var +1 höggi yfir pari þegar 3 holur voru eftir og þurfti því að taka á honum stóra sínum til að hafa það af í gegn um niðurskurð sem miðast við -1 högg undir pari.
Birgir spilaði alveg ágætlega í dag. Hann fékk samtals 5 fugla, 1 örn, 8 pör og 4 skolla og endaði því á -3 höggum undir pari á 68 höggum.
Hann lék á +2 höggum yfir pari í gær og er því á samanlagt -1 höggi undir pari eftir 2 daga. Birgir Leifur mun leika bæði laugardag og sunnudag, en rástímar eru ekki komnir enn. Glæsilegt hjá Birgi Leifi.