Birgir Leifur hefur aldeilis bitið í skjaldarrendur á seinni 9 holunum í dag. Hann hefur nú lokið 15 holum og er á -1 höggi undir pari.
Birgir Leifur byrjaði á 10. teig í morgun með því að fá 2 skolla á 1. og 3. brautinni en paraði síðan restina af seinni 9 holunum (hans fyrri). Á seinni 9 holunum hefur hann fengið 3 fugla og 3 pör og á eftir að ljúka síðustu 3 holunum. Hann er því á -1 höggi undir pari og er í 9. 21. sæti eins og er.