Birgir Leifur Hafþórsson kylfingur úr GKG var heldur betur heitur í dag á Áskorandamótaröðinni. Eftir mikinn fuglasöng í dag endaði Biggi á 64 höggum eða -6. Biggi er búin að leika á 69-67-64 og er því -10 og situr í 3 sæti ásamt nokkrum öðrum. Við sendum baráttukveðjur til Bigga og vonum að honum gangi vel á morgun.