Birgir Leifur náði ekki að fylgja eftir góðri byrjun á fyrri 9 holunum í Kazakhstan  í dag. Hann lék seinni 9 holurnar á 4 höggum yfir pari með 2 skolla og 1 skramba eftir að hafa fengið 3 fugla og 1 skolla á fyrri 9 holunum í morgun. Hann var því -2 undir á fyrri 9 holunum en tapaði því niður með því að leika +4 yfir pari á seinni 9.

 Við vonum þó að hann nái að rétta úr kútnum og sýna sitt rétta andlit með því að klára niðurskurðinn.