Sumaræfingum að ljúka – haustæfingar hefjast
Nú eru flestir skólar landsins að hefja starfssemi sína og með því lýkur hinum reglulegu sumaræfingum unglinga- og afrekshópa GKG - síðustu æfingarnar verða næstkomandi föstudag 22. ágúst.
Eins og alltaf þá taka við haustæfingar sem standa frá og með næsta mánudegi 25. ágúst til 18. september.
Tafla yfir æfingarnar er hér fyrir neðan:
Ottó Sigurðsson úr GKG sem tekur nú þátt í sðínu þriðja atvinnumannamóti í Portúgal náði sér ekki á strik á öðrum hring mótsins í dag þrátt fyrir að hafa verið að eiga nokkuð góð upphafshögg. Járnahöggin voru hinsvegar ekki að gera sig […]
Ottó Sigurðsson endaði á +5 höggum yfir pari eftir fyrsta keppnisdag á Backtee Open sem er hluti af Scanplan Tour og Nordic League mótaröðunum. Mótið sem fer fram í Portúgal er þriðja og síðasta mótið sem Ottó tekur þátt í í þessarri […]
Hole In One mótaröð GKG er nú lokið og fór verðlaunaafhending fram á lokahófinu okkar síðastliðinn þriðjudag og má sjá efstu 3 sætin í hverjum flokki hér að neðan. Hole In One veitti glæsileg verðlaun, gjafabréf að upphæð 12.000, 9.000 og 6.000 fyrir 1.-3. sæti í eldri flokkunum tveimur og síðan La Jolla kylfur fyrir öll sæti í yngsta flokknum. Við þökkum öllum þátttakendum sem og Hole In One fyrir höfðinglegan stuðning við mótaröðina í ár.