Birgir Leifur útnefndur í kjöri íþróttamanns ársins
Birgir Leifur Hafþórsson er einn 10 íþróttamanna sem er útnefndur í kjöri íþróttamanns ársins árið 2006. Þetta kjör sem samtök íþróttafréttamanna standa fyrir er nú haldið í 51. sinn.
Bein útsending verður á RUV og Sýn frá Grand Hóteli í Reykjavík, þar sem lýst er kjöri íþróttamanns ársins. Útsendingin hefst klukkan 20:00 á RUV og klukkan 19:25 á Sýn.
Nýr verðlaunagripur verður nú afhentur í fyrsta sinn, en styttan sem fylgt hefur kjörinu frá upphafi var afhent í síðasta sinn í fyrra og hefur nú verið látin Þjóðminjasafninu í té til varðveislu. Atkvæði í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna hafa verið talin og liggur ljóst fyrir hvaða tíu íþróttamenn urðu í efstu sætum í kjörinu.

Birgir Leifur endaði á 75 höggum í dag þegar hann lauk leik á South African Airways Open mótinu í Suður-Afríku. Birgir lauk leik á síðasta hringnum með ákaflega kaflaskiptum leik. Hann spilaði fyrri 9 holurnar á +5 höggum yfir pari en þær […]

Birgir Leifur er ekki að leika vel á fyrri 9 holunum á South African Airways Open mótinu sem fram fer á Humewood vellinum í Port Elizabeth í Suður-Afríku. Hann lék fyrri níu holurnar á +5 höggum yfir pari, eða samtals 40 höggum.
Birgir Leifur lék á -2 höggum undir pari á þriðja degi South African Airways Open golfmótinu sem er liður á Evrópumótaröðinn. Mótið fer fram á Humewood vellinum í Port Elisabeth í Suður-Afríku og lýkur á morgun.