Sveitir pilta og drengja í 1. sæti og Emil Þór með vallarmet í Sveitakeppni unglinga

Sveitakeppni unglinga hófst í morgun en hún fer fram á þremur stöðum. Stúlkurnar keppa hjá Golfklúbbi Suðurnesja í flokkum 16-18 ára og 15 ára og yngri. Drengir 15 ára og yngri keppa á Flúðum […]
Æfingaferð GKG afreksunglinga til Spánar 5.-12. apríl 2010
Líkt og undanfarin ár var farið í æfingaferð til útlanda til að undirbúa afrekskylfinga félagsins fyrir sumarið. Ferðin stóð þeim kylfingum til boða sem eru í afrekshópum unglinga og meistaraflokkum karla og kvenna. Því miður hentaði tímasetningin illa fyrir meistaraflokkskylfingana og fór aðeins einn úr þeirra röðum, en tólf úr unglingahópunum. Að auki voru þjálfararnir Derrick Moore og undirritaður. Fimm foreldrar nýttu tækifærið og slógust með í för. Eins og áður leggur GKG einungis til tíma þjálfarana, en allur kostnaður er greiddur af þátttakendum, og söfnuðu krakkarnir fyrir ferðinni með ýmsum hætti frá því í nóvember. Mæður þriggja þátttakenda, þær Valgerður, Eva og Dröfn sáu um skipulagningu á fjáröflunum og fá þær miklar þakkir fyrir það.
Birgir Leifur -2 undir þegar 3 holur eru eftir
Birgir Leifur er á -2 höggum undir pari þegar einungis 3 holur eru eftir. Fresta verð leik vegna veðurs upp úr hádeginu og er áætlað að hefja leik aftur nú um 14:30.
Birgir er á parinu samtals þegar einungis 3 holur eru eftir […]
Piltar og drengir komnir í undanúrslit í Sveitakeppni unglinga

Sveitakeppni unglinga hófst á föstudaginn og lýkur á morgun sunnudag. Í dag var leikin holukeppni, stúlkurnar í Leirunni og sigruðu GKG 16-18 ára stúlkur Sauðárkrók 3-0, mjög glæsilegt hjá þeim. Ein umferð var leikin hjá þeim eldri í dag en á morgun leika þær við NK um […]
Birgir Leifur á -1 höggi undir pari eftir fyrri 9
Birgir Leifur er nú á -1 höggi undir pari eftir að hafa lokið við fyrri 9 holurnar á lokahring lokadags úrtökumótanna.
Hann er nú samtals á +1 höggi yfir pari þegar 9 holur eru eftir. Birgir þyrfti að ná 3 fuglum á seinni […]
GKG Íslandsmeistarar í sveitakeppni drengja!

Í gær lauk Sveitakeppni unglinga, en hún fór fram á þremur stöðum, stúlkur hjá Golfklúbbi Suðurnesja, piltar 16-18 ára hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar og drengir 15 ára og yngri hjá Golfklúbbi Flúða.
A sveit drengja gerði sér lítið fyrir og varð Íslandsmeistari eftir spennandi úrslitaviðureign við A sveit Keilis. […]
Birgir Leifur 2 högg yfir pari fyrir síðasta hring
Birgir Leifur náði ekki að laga stöðu sína á seinni 9 holunum á 5. hringnum í dag á lokamóti úrtökumótanna. Hann fék 3 skolla á seinni 9 holunum og endaði á +3 höggum yfir pari sem er sami árangur og á 3. hring.
Úrslit úr fimmta móti Unglingamótaraðar GKG
Hér fyrir neðan má sjá úrslit úr fimmta mótinu í Unglingamótaröð GKG, en mótinu lauk 16. ágúst. Verðlaunahafar geta nálgast verðlaun sín í golfverslun GKG.
Besti samanlagður árangur úr þremur mótum telur í heildarkeppninni, en verðlaun fyrir það verða afhent á uppskeruhátíðinni, en dagssetningin hennar verður kynnt von bráðar.
2 skollar í röð – Birgir kominn niður í 40. sæti
Birgir Leifur hefur heldur gefið eftir á seinni 9 holunum. Hann hefur parað fyrstu 4 holurnar en fékk síðan skolla á 14. og 15. holu og er því á +1 höggi yfir pari og hefur fallið niður í 42. – 50. sæti. […]
.jpg)
