Úrslit úr fimmta móti Unglingamótaraðar GKG
Hér fyrir neðan má sjá úrslit úr fimmta mótinu í Unglingamótaröð GKG, en mótinu lauk 16. ágúst. Verðlaunahafar geta nálgast verðlaun sín í golfverslun GKG.
Besti samanlagður árangur úr þremur mótum telur í heildarkeppninni, en verðlaun fyrir það verða afhent á uppskeruhátíðinni, en dagssetningin hennar verður kynnt von bráðar.
Birgir Leifur hefur heldur gefið eftir á seinni 9 holunum. Hann hefur parað fyrstu 4 holurnar en fékk síðan skolla á 14. og 15. holu og er því á +1 höggi yfir pari og hefur fallið niður í 42. – 50. sæti. […]

Birgir Leifur byrjaði glæsilega í morgun á 5. hring í lokamóti úrtökumótanna. Hann byrjaði á því að para fyrstu tvær holurnar og fékk því næst fugl á þeirri 3. Paraði 4 og fugl á þeirri 5 og kominn -2 undir par eftir 5 holur og -3 undir pari í heildina. Síðan missti hann örlítið flugið og fékk skolla á 6. og 8. holu en paraði 7. og 9. og er því á parinu erftir 9 holur sem er frábær frammistaða. Hann er einungis 1 höggi frá því að vera meðal efstu 30 manna sem er takmarkið þegar upp verður staðið á eftir morgundaginn.
Birgir Leifur stóð sig frábærlega á niðurskurðarhring lokamóts úrtökumóta Evrópumótaraðarinnar í dag þegar hann endaði á -1 höggi undir pari og tryggði sér þar með áframhaldandi leik síðustu 2 keppnisdagana þar sem keppendur berjast um það að enda í 30 efstu sætunum.
Birgir Leifur náði að vinna upp 1 högg er hann náði fugli á 12. holunni og er á pari í dag. Hann er því á pari samtals og ætti það að duga honum í gegn um niðurskurð ef ekkert slæmt gerist […]
