Slide

GKG Íslandsmeistarar í sveitakeppni drengja!

Í gær lauk Sveitakeppni unglinga, en hún fór fram á þremur stöðum, stúlkur hjá Golfklúbbi Suðurnesja, piltar 16-18 ára hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar og drengir 15 ára og yngri hjá Golfklúbbi Flúða.

A sveit drengja gerði sér lítið fyrir og varð Íslandsmeistari eftir spennandi úrslitaviðureign við A sveit Keilis. […]

Úrslit úr fimmta móti Unglingamótaraðar GKG

Hér fyrir neðan má sjá úrslit úr fimmta mótinu í Unglingamótaröð GKG, en mótinu lauk 16. ágúst. Verðlaunahafar geta nálgast verðlaun sín í golfverslun GKG.

Besti samanlagður árangur úr þremur mótum telur í heildarkeppninni, en verðlaun fyrir það verða afhent á uppskeruhátíðinni, en dagssetningin hennar verður kynnt von bráðar.

Birgir Leifur byrjar vel í dag

Birgir Leifur byrjaði glæsilega í morgun á 5. hring í lokamóti úrtökumótanna. Hann byrjaði á því að para fyrstu tvær holurnar og fékk því næst fugl á þeirri 3. Paraði 4 og fugl á þeirri 5 og kominn -2 undir par eftir 5 holur og -3 undir pari í heildina. Síðan missti hann örlítið flugið og fékk skolla á 6. og 8. holu en paraði 7. og 9. og er því á parinu erftir 9 holur sem er frábær frammistaða. Hann er einungis 1 höggi frá því að vera meðal efstu 30 manna sem er takmarkið þegar upp verður staðið á eftir morgundaginn.

Ragnar Már sigraði í seinasta stigamóti ársins

Seinasta stigamót ársins í Arionbankamótaröðinni fór fram um helgina í Borgarnesi. Árangur okkar unglinga var glæsilegur, en Ragnar Már Garðarsson sigraði í 15-16 ára flokki eftir bráðabana við Kristinn Reyr Sigurðsson úr GR. Ragnar Már er búinn að vera mjög sigursæll undanfarið, en hann varð Íslandsmeistari í […]

Go to Top