Úrslit í púttmóti nr. 6 barna og unglinga GKG.
Púttmótaröð barna og unglinga hefur gengið vel í vetur og mæting verið einstaklega góð. Síðastliðinn laugardag mættu 58 og púttuðu, og var árangurinn oft á tíðum mjög góður. Hér fyrir neðan má sjá þá sem náðu besta árangrinum í hverjum flokki, en einnig er hægt að sjá árangur allra með […]
Birgir Leifur var að ljúka leik rétt í þessu og er -4 undir samtals eftir 2 keppnisdaga. Hann er því í ágætis málum hvað framhaldið varðar. Hann vissi ekki hver staða sín var en það kemur í ljós fljótlega og við komum […]
Birgir Leifur lék á -2 höggum undir pari í dag á 2. stigi úrtökumótsins á Sherry Golf á Spáni. Hann er staddur í 16. sæti af 83 keppendum
Birgir Leifur er nú að hefja leik á öðru stigi úrtökumótanna fyrir Evrópumótaröðina á næsta ári. Með árangri sínum í sumar tryggði Birgir sér þátttökurétt á 2. stiginu með því að enda í 88. sæti á Áskorendamótaröðinni.
Birgir Leifur endaði illa á Golf Open International de Toulouse í Frakklandi. Birgir endaði í 59.-62. sæti og hlaut fyrir það um 30.000 kr. Birgir Leifur átti slakasta hringinn sinn lokadaginn þegar hann lék á +5 höggum yfir pari, fékk 3 fugla, 6 skolla, 8 pör […]

Birgir Leifur er nú á +1 höggi yfir pari eftir 3 hring á Golf Open International de Toulouse í Frakklandi. Hann átti fremur slakan hring í dag þegar hann lék á +3 höggum yfir pari, fékk 3 fugla, 3 skolla, 11 […]