Slide

Birgir Leifur í Manchester

Birgir Leifur er nú staddur í Manchester á Englandi þar sem hann tekur þátt í Morson International Pro-am Challenge mótinu sem er enn einn liðurinn í Áskorendamótaröðinni. Völlurinn sem leikið er á tilheyrir Mariott hótelkeðjunni og er í Worsley við Manchester.

Birgir […]

Birgir Leifur byrjar illa

Birgir Leifur byrjaði illa á áskorendamótaröðinni í Manchester þegar hann lék fyrsta hringinn á 9 höggum yfir pari. Hann fékk 7 skolla og 1 skramba. Ekki einn einasti fugl leit dagsins ljós í gær.

Birgir Leifur sagði í stuttu spjalli í […]

Miðvikudagsmótaröðin að hefjast

Fyrsta mót ársins á miðvikudagsmótaröðinni fer fram á morgun 10. júní. Miðvikudagsmótaröðin verður spiluð sex sinnum yfir sumarið. Dagsetningarnar eru:  10. júní  –  1. júlí  –  15. júlí  –  29. júlí  –  12. ágúst  –  26. ágúst

Fyrirkomulagið er það sama og undanfarin ár. Kylfingar skrá sig venjulega […]

By |09.06.2009|Categories: Fréttir almennt|

Stigamót unglinga

Fyrsta stigamót unglinga fór fram um helgina á Strandavelli.
Veður setti strik í reikninginn báða dagana þar sem mikið rok var á vellinum.
Alls tóku 14 kylfingar frá GKG þátt í mótinu og besta árangrinum náði Ragnar Már Garðarsson en hann vann 13-14 ára flokk drengja.
Ragnar spilaði vel báða […]

By |25.05.2009|Categories: Fréttir almennt|

Félagsskírteini

Komin eru í hús nýtt upplag af félagsskírteinum.

Þeir sem eru nýir í klúbbnum eða voru ekki með í seinasta upplagi geta nú nálgast skírteini sín hjá okkur í rástímaskránni.

Einnig bendum við félögum sem eiga eftir að sækja að gera það við fyrsta tækifæri.

By |25.05.2009|Categories: Fréttir almennt|
Go to Top