Fyrsta mót ársins á miðvikudagsmótaröðinni fer fram á morgun 10. júní. Miðvikudagsmótaröðin verður spiluð sex sinnum yfir sumarið. Dagsetningarnar eru: 10. júní – 1. júlí – 15. júlí – 29. júlí – 12. ágúst – 26. ágúst
Fyrirkomulagið er það sama og undanfarin ár. Kylfingar skrá sig venjulega á rástíma, koma inn í golfverslun og greiða þar mótsgjald 1.500 krónur og fá útprentað skorkort til að skrá inn skorið sem á að skila inn eftir hringinn. Kylfingar hafa möguleika á því að skila inn skorkortinu til kl 22 á fimmtudaginn eftir mótið. Leikin er punktakeppni í karla og kvennaflokki og gilda 4 bestu hringirnir af 6 í sumar. Eins og áður verða glæsileg verðlaun fyrir heildapunktakeppnina eins sem að veitt verða verðlaun fyrir flesta punkta í einstökum mótum. Núna er um að gera að taka þátt í þessu skemmtilega innanfélagsmóti og spila Leirdalinn sem er í frábæru standi þessa dagana.