Birgir Leifur hefur leik á morgun
Birgir Leifur lék í dag í Pro Am sem er ávallt haldið degi fyrir keppnisdag á Áskorendamótaröðinni. Birgir og liðið hans gerðu sér lítið fyrir og sigruðu mótið en Birgir sagðist í samtali vera bjartsýnn fyrir "alvöru" mótið og […]
Birgir Leifur var að ljúka leik rétt í þessu og endaði hringinn í dag á 2 höggum undir pari með því að fá örn (-2) á lokaholunni. Með þessu er hann búinn að tryggja sig í gegn um niðurskurðinn.
Birgir Leifur er á 1 höggi undir pari eftir 9 holur í dag á Lexus Open mótinu sem fram fer á Larvik golfvellinum í Noregi þessa helgi. Birgir Leifur lék á parinu í gær og er í ágætis málum ef hann heldur uppteknum […]
Birgir Leifur hefur nú lokið 12 holum og er enn 1 undir pari. Hann hefur fengið 1 fugl, 2 skolla og 1 örn á hringnum til þessa.
Birgir Leifur er nú staddur í Manchester á Englandi þar sem hann tekur þátt í Morson International Pro-am Challenge mótinu sem er enn einn liðurinn í Áskorendamótaröðinni. Völlurinn sem leikið er á tilheyrir Mariott hótelkeðjunni og er í Worsley við Manchester.
Birgir Leifur byrjaði illa á áskorendamótaröðinni í Manchester þegar hann lék fyrsta hringinn á 9 höggum yfir pari. Hann fékk 7 skolla og 1 skramba. Ekki einn einasti fugl leit dagsins ljós í gær.
Birgir Leifur hefur nú lokið leik á Telenet Trophy mótinu í Belgíu. Hann lék síðasta hringinn á parinu og endaði mótið í 42. – 49. sæti eftir 4 keppnisdaga á pari (73+71+72+72).