Opnunarmót Leirdals

Birgir Leifur á í basli á fyrstu holunum á Telenet Trophy mótinu sem nú fer fram í Belgíu. Hann hefur leikið fyrstu 6 holurnar á 4 höggum yfir pari. 3 pör 2 skollar og einn skrambi. Við vonumst til þess að kappinn rífi sig í gang og lagi stöðuna.
Birgir Leifur mun hefja leik á Telenet Trophy, á Limburg golfvellinum í Belgíu klukkan 8:10 í fyrramálið. Hann mun hefja leik á 1. teig ásamt frakkanum David Olivier sem náði ekki í gegn um niðurskurð á mótinu um síðustu helgi og […]
Birgir Leifur er nú að halda til Belgíu þar sem hann mun taka þátt í Telenet Trophy golfmótinu sem er liður í Áskorendamótaröðinni og verður haldið á Limburg Golf & Country Club. Mótið hefst á fimmtudag og stendur fram á sunnudag. Skorið er niður eftir 2 daga og því mikilvægt fyrir Birgi Leif að leika vel.
Birgir Leifur nær ekki að taka þátt í Parco Di Monza Challenge mótinu sem hefst á morgun á Ítalíu.
Birgir Leifur lauk leik á tveimur höggum yfir pari á öðrum hring á Challenge mótaröðinni á Ítalíu. Samtals lauk hann leik á þremur höggum yfir pari og náði þar með ekki í gegnum niðurskurðin að þessu sinni. Nú er smá hlé á mótaröðinni en næsta mót er einnig á Ítalíu. […]
Birgir Leifur lék á einu höggi yfir pari í dag á fyrsta hring á Ítalíu í dag. Birgir var nokkuð sáttur með útkomuna og þetta lofaði allt góðu fyrir áframhaldið. Hann gerði fá mistök í dag með aðeins 3 skolla og tvo fugla. Birgir þarf að leika vel á öðrum […]
Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG mun vera meðal þátttakenda á Tessali Metaponto Open di Puglia e Basilicata mótinu á Ítalíu dagana 27 Apríl - 30 apríl.
Næsta mót sem Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG mun freista að taka þátt í er Peugeot Challenge sem haldið er á Real Club de Golf El Prat vellinum sem er rétt fyrir sunnan Barcelona á Spáni.