Hann Kjartan Sigurjón Kjartansson gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 17. holu Leirdalsvallar á fyrsta degi Íslandsmóts unglinga. Kjartan sló með 50° fleygjárni, boltinn lenti nálægt flaggi og rúllaði um 2 metra fram fyrir flaggið og spann sig svo til baka í miðja holu.

Kjartan var í fyrsta holli mótsins með  Breka Gunnarssyni Arndal. Fagnaðalætin voru mikil og einlæg. Þeir félagar eiga jafnframt hrós fyrir leikhraðann en þeir spiluðu 18 holurnar á 2 tímum og 50 mínútum.

Við óskum Kjartani innilega til hamingju með árangurinn en þetta er í þriðja sinn sem hann nær að fara holu í höggi. Jafnframt óskum við þeim félögum til hamingju með frábæran spilatíma, þeir eru sannarlega fyrirmyndir í þeim efnum.