Emil Þór Ragnarsson lauk keppni á International Austrian Amateur Championship í 73. sæti. Emil lék á 76-76-79, +15, og var 5 höggum frá því að komast áfram í lokahringinn. Það var heimamaðurinn Robin Goger sem tryggði sér sigur í mótinu eftir bráðabana við Finnann Kristian Kulokorpi, en þeir léku báðir 72 holur á 12 höggum undir pari.

Hægt er að skoða úrslit hér.