Kæru félagar,

Fimmtudagskvöldið 17. maí munum við halda félagsfund vegna skipulagsbreytinga hjá Garðabæ.

Þann 1. febrúar héldum við félagsfund þar sem ákveðið var að við ásamt Garðabæ myndum skipa starfshóp um framtíðarskipulag golfvallarins. Starfshópurinn hefur unnið að tillögum með aðstoð Snorra Vilhjálmssonar golfvallararkitekts. Á fundinum munum við fara yfir stöðu mála og kynna þær tillögur sem fram eru komnar.

Fundurinn er haldinn í Íþróttamiðstöð GKG og hefst kl. 20:00. Boðið verður upp á léttar kaffiveitingar. Ath. að í bréfi sem við sendum út nú fyrir helgi var talað um að fundurinn yrði á þriðjudagskvöldinu, svo verður ekki, hann frestast sem sagt til fimmtudags.

Sjáumst hress!
Stjórn og stafsfólk GKG.