Kæru félagar.
Á aðalfundi GKG 28. nóvember s.l. var tekin ákvörðum um félagsgjöld næsta árs og eru þau með eftirfarandi hætti:
- Almennir félagsmenn kr. 85.200,-
- 67 ára og eldri kr. 54.500,-
- Unglingar 16-19 ára kr. 45.000,-
- Unglingar 14-15 ára kr. 36.100,-
- Börn 11-13 ára kr. 28.900,-
- Börn 10 ára og yngri kr. 14.500,-
- Inntökugjald kr. 21.300,-
Í næstu viku verða sendir út greiðsluseðlar og verður boðið upp á sömu leiðir og undanfarin ár, þ.e.:
- Staðgreiðsla með gjalddaga 3. febrúar 2014 og eindaga 15 dögum síðar
- Skipta greiðslu í þrennt, gjaldagar 3. febrúar, 3. mars og 3. apríl 2014. Seðlagjöld koma á þessar greiðslur.
- Skipta greiðslu í 4-8 gjalddaga. Þetta er eingöngu gert með kortalánum og fellur þá kostnaður á greiðslurnar allt eftir því í hversu marga gjalddaga er skipt.
Við bendum félagsmönnum á að eftir eindaga reiknast dráttarvextir frá gjalddaga.
Þeir félagar sem nýttu sér leið 1 og 2 á síðasta ári eru enn skráðir þannig í félagaskránni, það breytist ekki nema viðkomandi hafi samband við okkur.
Þeir sem nýttu sér leið 3 eða kortalán og vilja þá leið aftur eru beðnir að hafa samband við skrifstofuna.
Við biðjum þá félaga sem vilja skipta eða breyta greiðslum að hafa samband við okkur með tölvupósti á netfangið gudrun@gkg.is fyrir 15. Janúar nk.
Einnig er hægt að hringja í okkur og fá nánari upplýsingar í síma 565 7037
GKG kveðjur
Guðrún Helgadóttir