GKG-ingar takið 27. febrúar frá fyrir þriðju umferð félagsvistarinnar!.
Í síðustu félagsvist vann Kristlaug Sigríður kvennaflokkinn annað skiptið í röð og formaðurinn nældi sér í verðlaun. Nú er það stóra spurningin hverjir taka þetta næstkomandi fimmtudag, en aðalatriðið er nú samt að vera með og njóta samverunnar svona korteri fyrir opnun valla 😉
Félagsvistin fer fram í íþróttaskálanum og er undir vaskri stjórn GKG-ingsin knáa Einars Gunnars Guðmundssonar.
Engin skráning, bara mæta fimmtudaginn 27. febrúar kl. 19:30 með góða GKG andann upp á vasann og 500 kall fyrir kaffimaulinu.