Allir keppendur hafa lokið leik í dag í Búlgaríu á St. Sofia golf and spa vellinum, þar sem EM klúbbliða fer fram.
Stelpurnar okkar, Ingunn, Ragna og Gunnhildur léku vel í dag og komu inn á samtals 143 höggum, en tvo bestu skorin gilda fyrir liðið. Ingunn og Ragna léku á 75 höggum, en Gunnhildur gerði sér lítið fyrir og lék á 68 höggum, þremur höggum undir pari! Frábær spilamennska hjá Gunnhildi og hún ætlar greinilega að enda tímabilið með glæsibrag. Þetta er í fyrsta sinn sem hún leikur undir pari í móti og ekki amalegt að gera það á alþjóðlegu móti.
Þess má geta að stúlkurnar leika á gulum teigum, en völlurinn er um 5.500 metrar að lengd af þeim teigum, sem er lengra en nokkur völlur sem þær leika hér heima í mótaröðinni, þannig að árangur þeirra er enn glæsilegri fyrir vikið.
Það er Smörum golfklúbburinn danski sem leiðir áfram, en þær dönsku hafa leikið hringina tvo á samtals 18 höggum undir pari, sem er virkilega glæsilegur árangur. Lokahringurinn fer fram á morgun.
Hér er hægt að sjá skor allra keppenda, en hér fyrir neðan eru skorkort GKG kvenna.