Atvinnukylfingarnir okkar Birgir Leifur og Ólafur Björn eru nú við keppni á NorthSide Charity Challenge mótinu, sem er hluti af Nordic League 3. deildinni. Þetta er annað mótið í röð sem þeir keppa á og stóðu þeir sig vel í seinustu viku, Birgir í 5. sæti og Ólafur í 11.
Birgir Leifur lék Lyngbygaard völlinn á 4 undir pari í dag eða 68 höggum, mjög stöðugur, fimm fuglar og einn skolli. Frábær byrjun og hann er aðeins einu höggi frá efsta sætinu. Ólafur Björn lék ágætlega en skollarnir voru helst til margir og hann kom í hús á 74 höggum og er 63. sæti.
Hér er hægt að fylgjast með gangi mála hjá þeim köppum.