Kæru félagsmenn,

Við höfum lagt okkur í líma við að fylgja fyrirmælum yfirvalda um allar þær aðgerðir sem boðaðar hafa verið vegna Covid-19 sem vonandi nær sínu hámarki á næstu dögum. Með hagsmuni okkar allra að leiðarljósi höfum við ákveðið að ganga skrefinu lengra og loka innanhússaðstöðunni okkar þar til hægir á faraldrinum.  Mun lokunin vera frá og með laugardeginum 4. apríl.

Við munum strax í næstu viku kynna fyrir ykkur ýmsar nýjungar sem við erum að vinna að og ættu að gagnast öllum félagsmönnum við að koma sér í góðan golfgír fyrir opnun valla.

Með GKG kveðjum,

Stjórn og starfsfólk GKG