Danirnir telja sig vera meistara purusteikurinnar en það er bara út af því að þeir vita ekki af Vigga vert í Mulligan.

Nú höldum við GKG-ingar áfram að bjóða vinum, vandamönnum og/eða vinnufélögum í föstudagshádegi GKG þann 29. maí næskomandi.

Viggi býður uppá:

  • Grísapurusteik með rjómasósu
  • Ofnbakaðri kartöflu– bökuðu grænmeti
  • Tilheyrandi meðlæti rauðkál – lauksulta – eplasalat

Verð kr. 2.500,-

Endilega panta borð með því að senda línu á vignir@gkg.is.

Með GKG kveðjum,

Purusteikarnefnd GKG