Hlynur Þór Haraldsson kvaddi þennan heim á heimili sínu þann annan september síðastliðinn í faðmi fjölskyldunnar eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Við GKG-ingar minnumst Hlyns Þórs með hlýhug

Hlynur Þór Haraldsson var alinn upp í barna- og unglingastarfi GKG og var ágætis kylfingur og með eindæmum högglangur. Hann hafði mikinn áhuga á golfi og gerði golfkennslu af sínu ævistarfi. Hann útskrifaðist sem PGA kennari frá Norska golfkennaraskólanum og hafði þá starfað sem yfirþjálfari hjá Stickstad golfklúbbnum. Það var mikill fengur fyrir okkur í GKG þegar Hlynur Þór var ráðinn í þjálfarateymi GKG árið 2010. Með þeim hætti aðstoðaði hann fjölmarga GKG-inga við að taka fyrstu skrefin í golfíþróttinni og snart hann hjörtu flestra þeirra sem hann liðsinnti.

Við hjá GKG sendum fjölskyldu Hlyns okkar innilegustu samúðarkveðjur.