Við fáum aldrei leið á að monta okkur af glæsilegum og sístækkandi afrekshóp GKG. Í fyrra bættist Guðmundur Ágúst Kristjánsson í þennan flotta hóp, en hann er 29 ára gamall Reykvíkingur með +3.5 í forgjöf og hefur lengst af tengst GR en jafnframt unnið árum saman með meistara Arnari Má afreksþjálfara GKG. Guðmundur Ágúst er nýkominn heim frá keppni í Suður-Afríku þar sem hann var að gera góða hluti í Áskorendamótaröðinni en túrinn er svo á leiðinni til Evrópu þar sem fyrsta mótið fer fram á Spáni í maí næstkomandi. Hér heima er ofarlega á óskalistanum hjá okkar manni að taka róna-hring með félögunum en það er greinilega uppáhalds slökun og spilaform afrekskylfinganna okkar þegar þeir eru ekki í keppnishamnum ?
Guðmundur Ágúst er vel stemmdur inn í sumarið framundan enda er þessi snillingurinn heldur betur að láta drauminn rætast. Við bjóðum hann hjartanlega velkominn í GKG hópinn og hlökkum til að fylgjast með honum á túrnum og í öðrum áskorunum golfsumarsins!
En hvað var það sem dró golfmeistarann Guðmund Ágúst að golfinu og hvenær?
Held að það hafi bara verið öll fjölskyldan í föðurætt, og ég var byrjaður að berja kúlur þegar að ég var 3 ára. Held að ég hafi spilað fyrsta Meistaramót í GR þegar að ég var 8 ára.
Hver verða helstu mótin þín í sumar og hvert er leynivopnið þitt?
Ég mun spila mest á Challenge Tour, og ég uppljóstra auðvitað ekki slíkum leyndarmálum.
Hvers vegna GKG?
Ég hafði unnið lengi með Arnari Má, og eftir að hann flutti heim til Íslands þá varð bara mjög praktískt að vera í sama klúbbi og hann.
Mýrin eða Leirdalur?
Leirdalur.
Stóðu vellirnir undir væntingum þínum golfsumarið 2021?
Ég spilaði bara svo lítið heima árið 2021, og ég man hreinlega ekki hvernig vellirnir voru.
Hvað stendur upp úr hjá þér eftir síðasta golfsumar?
Held að sigur í Einvíginu á Nesinu hafi verið það eina sem að stóð upp úr.
Hvert er drauma GKG hollið þitt og hvaða utanfélagsmaður fengi að vera með í hollinu?
Arnar Már, Aron Snær og ætli maður yrði ekki að bjóða Tiger með.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur lent í á golfferlinum?
Að vinna þriðja mótið á sama árinu á Nordic League og komast þar með á Challenge Tour.
En það vandræðalegasta?
Á fyrsta Challenge Tour mótinu sem að ég spilaði, þá var ég að kaupa mér nesti í klúbbhúsinu fyrir hring. Ég var frekar seinn og var eitthvað utan við mig og tók vitlaust golfsett með á fyrsta teig og þurfti að hlaupa ca. 300 metra til baka og sækja settið mitt. Held að ég hafi verið nokkrum sekúndum frá því að fá víti fyrir að mæta seint á teig.
Tekur þú þátt í GKG mótunum og ef svo er hvert er uppáhaldsmótið þitt?
Held að ég hafi ekki spilað í móti í GKG síðan að ég kom í klúbbinn.
Það væri nú gaman að sjá þennan snilling takast á við hina meistarana í skemmtilegasta móti klúbbsins í júlí ?
Hvert er uppáhalds leikformið þitt?
Róni með góðum félugum.
Hver eru bestu og verstu golfkaupin sem þú hefur gert í gegnum golftíðina?
Bestu eru líklega rigningarhandklæði sem verða varla blaut í rigningu, og verstu eru Two Ball pútter sem að ég notaði í nokkra hringi þegar að ég var krakki.
Uppáhalds holan þín á Leirdalnum?
Fyrsta. Fallegt útsýni, erfitt teighögg og grínið tekur alltaf mjög vel við innáhöggunum.
Uppáhalds holan þín á Mýrinni?
Níunda. Flott par 3 hola.
Hver er uppáhaldsvöllurinn fyrir utan GKG?
Grafarholtið.
Notar þú golfhermana og ef svo er hver er upplifunin?
Nota þá mjög mikið, æðislegt að hafa aðgang að þeim yfir veturinn.
Hver er uppáhaldskylfan?
Pútterinn minn.
Áttu þér fyrirmynd í golfinu?
Já, Tiger Woods og Robert Rock.
Uppáhaldsnestið í golfpokanum?
Próteinsjeik.
Hvað er lang, lang best við GKG?
Fyrir mér er það Arnar Már, svo er Trackman aðstaðan æðisleg.
Myndir: kylfingur.is