Hvíta lið GKG varð Íslandsmeistari golfklúbba 12 ára og yngri

Íslandsmóti golfklúbba 12 ára og yngri lauk um helgina í GKG á Mýrinni. Mótið fór fram dagana 19.-21. júní og var fyrsti dagurinn spilaður í Korpunni hjá GR, dagur tvö á Bakkakoti hjá GM og loks úrslitadagurinn hjá okkur í GKG. 

GKG tefldi fram fjórum liðum sem léku í hvítu, gulu, bláu og rauðu deildinni. Alls eru sex deildir og er raðað eftir getu kylfinga. Hvíta deildin keppir um Íslandsmeistaratitil og einnig gula deildin sem er eingöngu skipuð telpum. Leikið er með Texas Scramble fyrirkomulagi. GKG lék til úrslita í Hvítu deildinni við GR og hafði betur, sigraði reyndar örugglea í öllum leikjum.

Rauða liðið varð deildarmeistari í sinni deild, þannig að GKG fékk nafn klúbbsins á tvo bikara.

Mótið er einstakt hvað varðar stemningu en það skapar mikla liðsheild að leika sem lið með Texas fyrirkomulaginu sem er í mótinu.

Krakkarnir fengu frábæra reynslu og eru sammála um að þetta sé skemmtilegasta mótið á hverju sumri. Svona voru liðin okkar skipuð:

Hvíta sveitin – 1. sæti – Íslandsmeistarar!
Jón Reykdal Snorrason
Þorleifur Ingi Birgisson
Eiríkur Bogi Karlsson
Leon Mikael Elfarsson
Gabríel Þór Sigurðarson

Gula Sveitin – 4. sæti
Arna Dís Hallsdóttir
Embla Dröfn Hákonardóttir
Eva Sóley Jónasdóttir
Ásthildur Eva Helgadóttir

Bláa sveitin – 2. sæti
Ragnar Sölvi Leifsson
Sölvi Hrafn Ólafsson
Alexander Hrafn Kristinsson
Heiðar Ingi Lýðsson

Rauða sveitin – 1. sæti – Deildarmeistarar!
Hafsteinn Breki Birgisson
Stefán Bjarni Freysson
Guðmundur Leó Guðmundsson
Kristján Flóki Högnason
Árni Rafn Atlason

Krakkarnir stóðu sig vel og voru algjörlega sér og sínum til fyrirmyndar. Framtíðin er svo sannarlega björt hjá GKG, til hamingju öll sömul!

Íslandsmót golfklúbba 12 ára og yngri fór fyrst fram árið 2017 og er mótið í ár það níunda frá upphafi. GKG hefur sigrað í Hvítu deildinni sex sinnum.

Vinningshafar frá upphafi:

2017: GKG
2018: GS
2019: GS
2020: GKG
2021: GKG
2022: GKG
2023: GKG
2024: GA
2025: GKG 

Eins og áður sagði var leikið í fyrsta sinn um Íslandsmeistaratitil í Gulu deildinni og er það sveit GO sem fær nafn klúbbsins í fyrsta sinn á bikarinn.

Smelltu hér fyrir heildarúrslit, myndir og fleira.

Gula sveitin hafnaði í 4. sæti

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Deildarmeistarar í Rauðu deildinni!

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Bláa sveitin endaði í 2. sæti

 

By |24.06.2025|Categories: Fréttir|

Share This Story, Choose Your Platform!

Go to Top