Það er komið að því aftur … ekki í fyrsta skiptið (eðlilega) … og ekki síðasta skiptið heldur … að Viggi vert velti kótilettunum upp úr MS smjörinu.
Viggi ætlar að bjóða okkur upp á herlegheitin í hádeginu föstudaginn 22. maí sem samanstendur af fyrrnefndum smjörsteiktu kótilettum, ofnbökuðum kartöflum, kremaðri sveppasósu og íslensku eðalgrænmeti.
Þetta er einstakt tækfæri sem allir GKG-ingar grípa fegins hendi og bjóða með sér vinum, vinnufélögum og/eða fjöldskyldu … tilvalið tækifæri til að t.d. styrkja böndin við fjarskylda ættingja.
Verð kr. 2.500,-
ALLIR verða að panta borð fyrirfram með því að senda póst á vignir@gkg.is og er valmöguleikinn kl. 11:30, 12:10 og 12:50.
Kótilettunefnd GKG