Kæru félagar, við uppfærslu á golf.is urðu þau leiðu mistök að forgjöf einhverra kylfinga uppfærðist með röngum hætti. Nú í vikunni verða þessi mistök leiðrétt með eftirfarandi hætti.
- Forgjöf þeirra kylfinga sem áttu ekki að fá leiðréttingu, hún verður felld niður
- Þeir kylfingar sem áttu að fá leiðréttingu en fengu ekki fá nú sína leiðréttingu
- Þá voru aðilar sem fengu ranga leiðréttingu á forgjöf, hún verður nú leiðrétt
Leiðréttingin mun ná til um 100 kylfinga.
Biðjumst við velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.
Forgjafarnefnd GKG