Kæru félagar, við uppfærslu á golf.is urðu þau leiðu mistök að forgjöf einhverra kylfinga uppfærðist með röngum hætti. Nú í vikunni verða þessi mistök leiðrétt með eftirfarandi hætti.

  • Forgjöf þeirra kylfinga sem áttu ekki að fá leiðréttingu, hún verður felld niður
  • Þeir kylfingar sem áttu að fá leiðréttingu en fengu ekki fá nú sína leiðréttingu
  • Þá voru aðilar sem fengu ranga leiðréttingu á forgjöf, hún verður nú leiðrétt

Leiðréttingin mun ná til um 100 kylfinga.

Biðjumst við velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.

Forgjafarnefnd GKG