Á hverjum degi í meistaramótinu verðum við með nándarverðlaun og sá aðili sem spilar á flestum punktum fær jafnframt verðlaun.

Á mýrinni var það Brynjar Már sem setti hann 1,25 metra frá holu.

Á Leirdalnum á 4. Holu var það Gestur Þórisson sem setti hann 1,67 metra frá holu og á 17. er Magnús SIg með 0,81 metra frá holunni.

Flesta punktana Fengu þau Þórhallur Sverrisson og Irena Ásdís Óskarsdóttir eða 40 punkta.

Óskum við þessum kylfingum til hamingju með árangurinn!

Allir vinningshafar fá 5 skipta háftímakort í golfherma GKG.