Ottó Sigurðsson endaði á +5 höggum yfir pari eftir fyrsta keppnisdag á Backtee Open sem er hluti af Scanplan Tour og Nordic League mótaröðunum. Mótið sem fer fram í Portúgal er þriðja og síðasta mótið sem Ottó tekur þátt í í þessarri mótahrinu.
Ottó fékk 8 skolla, 7 pör og 3 fugla á hringnum í dag og er því á fimm höggum yfir pari eins og áður sagði. Hann er í 31. – 35. sæti eftir daginn ásamt félaga sínum Heiðari Davíð Bragasyni úr Kili.