Ottó Sigurðsson úr GKG sem tekur nú þátt í sðínu þriðja atvinnumannamóti í Portúgal náði sér ekki á strik á öðrum hring mótsins í dag þrátt fyrir að hafa verið að eiga nokkuð góð upphafshögg. Járnahöggin voru hinsvegar ekki að gera sig hjá honum í dag.

Ottó kom inn á 80 höggum, eða 8 höggum yfir pari og er í 42. sæti af 58 keppendum. Hann lék á 77 höggum í gær og er því ekki alveg að finna taktinn í þessu móti. Þetta er þó dýrmætt tækifæri fyrir hann á meðan hann stígur sín fyrstu skref á atvinnumannabrautinni.

Lokahringur mótsins fer fram á morgun og er Ottó síðan væntanlegur til landsins eftir helgina.