Viggi vert er staðráðinn í að toppa kótilettuhádegið síðasta föstudag með purusteikahádegi.
Danirnir telja sig vera meistara purusteikurinnar en það er bara út af því að þeir vita ekki af Vigga.
Nú höldum við GKG-ingar áfram að bjóða vinum, vandamönnum og/eða vinnufélögum í föstudagshádegi GKG þann 22. mars næskomandi.
Viggi býður uppá:
- Grísapurusteik með rjómalagaðri soðsósu( gravy )
- Steiktum kartöflum – bökuðu grænmeti
- Tilheyrandi meðlæti rauðkál – lauksulta – eplasalat
Verð kr. 2.500,-
Síðastliðinn föstudag þurfti fólk frá að hverfa þar sem allt var fullt, því er lykilatriði að panta borð á vignir@gkg.is.
Með GKG kveðjum,
Purusteikarnefnd GKG