Birgir Leifur var einungis 3 sætum frá því að komast ekki inn. "Það mátti varla tæpara vera" sagði Birgir Leifur í kvöld þegar við hringdum í kappann. "Þetta hafa óneitanlega verið vonbrigði að komast ekki í keppni í þetta langan tíma. Ég er búinn að æfa gríðarlega vel og mikið og iða í skinninu eftir því að komast í keppni og láta reyna á þetta allt saman. Það er ekki hægt að líkja því saman að æfa sig og spila hringi sér til skemmtunar eða að takast á við mót á mótaröðinni. Þar er það spennan og andinn sem gefur manni svo mikið. Allt umhverfið á mótaröðinni í Evrópu hefu breyst mikið og eru styrktaraðilar farnir að setja æ meiri svip á hvert mót. Í þessu móti í Belgíu eru til að mynda 50 keppendur sem boðið er af styrktaraðilum mótsins. Það er ansi hátt hlutfall þegar einungis á milli 160 og 170 keppendur komast að."
Að þessu móti loknu mun Birgir Leifur halda til Marokkó í Afríku til að taka þátt í Tikida Hotels Agadir Moroccan Classic mótinu sem fer þar fram í Agadir í Marokkó dagana 25. – 28. maí. Birgir Leifur lék vel á þessu móti í fyrra þegar hann endaði í 8. sæti á 11 höggum undir pari.
"ÉG er síðan að gera mér vonir um að ná að komast inn á Pro-Am mótið í Manchester um mánaðarmótin. Í kjölfarið kíki ég heim til Íslands í nokkra daga, heilsa upp á framtíðarkylfingana í GKG og safna orku fyrir komandi baráttur" sagði Birgir Leifur að lokum