Rafræn greiðsla félagsgjalda

Eins og áður, þá er gengið frá félagsgjöldum í gegnum Nóra. Félagsmenn geta skráð sig inn með rafrænum skilríkum á slóðinni gkg.felog.is og gengið frá greiðslu félagsgjalda fyrir árið 2022. Bæði er hægt að greiða með greiðslukorti eða fá kröfur í heimabanka. Öll greiðsla félagsgjalda er rafræn og ganga félagsmenn sjálfir frá greiðslu í gegnum vefinn.

Greiðsluleiðir

  • Allt að 10 skipti á greiðslukort
  • Allt að 6 kröfur í heimabanka (Kröfurnar birtast með nafni Greiðslumiðlunar í heimabanka)

Ath. að 3% álag leggst á alla greiðsludreifingu

Vakni einhverjar spurningar varðandi félagsgjöld eða greiðslu þeirra er félagsmönnum bent á að hafa samband við verslun GKG í síma 570 7373. Verslunin er opin alla virka daga á milli klukkan 09:00 og 23:00.

Hafi engar ráðstafanir verið gerðar af hálfu félagsmanna fyrir 15. janúar næstkomandi munu þeir aðilar fá greiðsluseðil í banka með gjalddaga 2. febrúar.

Ætli félagsmaður að hætta í GKG  þá bendum við á að samkvæmt 3. grein laga GKG þá er úrsögn er bundin við áramót, og skal berast rafrænt eða skriflega til framkvæmdastjóra fyrir lok desembermánaðar.

Hægt að skoða leiðbeiningar á myndbandsformi (frá 2020) með því að smella hér. og hér að neðan eru leiðbeiningar í myndaformi. Byrjað er á því að fara á gkg.felog.is  og skrá sig inn með rafrænum skilríkjum (líkt og gert er til að fara í heimabankann sinn).

Ef illa gengur komið þá við hjá okkur og við liðsinnum ykkur.